þriðjudagur, júní 03, 2008

grobbin

Var hryllilega þreytt - vaknaði klukkan 5 í morgun af tómu stressi held ég. Tókst ekki að leggja mig þegar ég kom heim. En núna rétt í þessu þegar ég var að kíkja á síðuna mína hjá HÍ fyrir svefninn, sá ég að það voru komnar einkunnir í Upplýsingaleiðum og Vefstjórn - 9 í því fyrra og 8 í því síðara. Fékk algjört adrenalínkikk. Rosalega ánægð - sérstaklega með þá fyrri. :-). Hugsa samt með samúð til K... sem þarf að bíða eftir einkunninni því einhver týndi síðasta vefverkefninu hennar. Hvernig er svoleiðis hægt?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hjartanlega til hamingju Jóhanna mín, snillingur!! Kær kvrðja, Ása.

Til að muna .. sagði...

takk elsku Ása mín