þriðjudagur, júní 26, 2012

Smámynd

Upp að húsinu keyrir stór ruslabíll. Út hoppa tveir menn. Annar gengur að tunnunni með lífræna sorpinu - tekur upp tvo litla poka. Þeir líta á hvorn annan, spjalla - glaðir í sólskininu. Sá með pokana gengur aftur fyrir bílinn og hendir pokunum inn. Báðir upp í bílinn. Bíllinn fer.

laugardagur, maí 26, 2012

Gróðurinn á svölunum 26. maí

 Ætlaði bara að kaupa skrúfur í Húsasmiðjunni - en kom heim með myntu, lavendel, smá salat og og mold. Þótti greinileg oft langt í salatið  í yfirbreidda pottinum og graslaukur verður kannski leiðigjarn. 

Maður verður líka kannski ofvirkur eftir ruslatínslu á Samfélagsdegi í dásamlegri blíðu.
Posted by Picasa

laugardagur, janúar 28, 2012

Nammikúlur með gojiberjum

25-39 kúlur
1 dl möndlur
1 dl kasjúhnetur
1 msk gott dökkt kakó
1 dl all-bran venjulegt

5 döðlur í bleyti í 2 tíma
1 dl gojiber í bleyti í 2 tíma

All-bran og kakaó til að velta kúlunum í
Saxa möndlur og hneturnar í blandara
Svo restina í og blanda vel
Velta kúlunum upp úr muldu all-bran með smá kakaói í.
Geyma í kæli.

sunnudagur, janúar 01, 2012

Nýársdagur 2012


Ég sat í stúkusæti og horfði á flugeldasýninguna út um stofugluggann minn í gærkvöldi - en vantaði statíf undir myndavélina.
Fallegur dagur á Héraði svo ég ætla út og skoða nýárfærið.
Áramótaheitið er að hugleiða á hverjum degi næstu 40 daga og 30 mínútna labbitúr.