föstudagur, febrúar 29, 2008

Álfarnir fá lánað

Get svo svarið það... - Mamma sagði alltaf ef eitthvað týndist að álfarnir hefðu fengið það lánað. Núna er yddarinn sem á heima í snyrtibuddunni minni og búin að vera týndur síðan um áramót kominn aftur á sinn stað. Ég er búin að leita í dyrum og dyngjum og mest í téðri snyrtibuddu. Já hérna - ég er orðin sannfærð aftur.

1 ummæli:

Þorgerður AKA Toggan sagði...

Já hárrétt þessir álfar sko!
Ef þeir myndu skila hlutunum STRAX þá væri þetta ekkert mál en þeir þurfa að halda þeim svo lengi, lengi, lengi...