þriðjudagur, október 14, 2008

Draumfarir

Mig dreymdi í nótt að ég var að róa upp straumþunga á. Komst slatta upp með henni, undir brú en gafst upp og komst upp á bakkann hægra megin. Ætlaði að hvíla mig þar og taka svo annan áfanga seinna. Svo kom einhver framhaldsdraumur - þá var ég líka á kajaknum en á hraðri leið niður Hvítá, fyrir neðan Selfoss, í átt til sjávar. Hvort ætli þetta hafi með námið að gera eða fjármálin?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Varstu ekki þreytt eftir þetta?
Verður þú nokkuð í Þjóðarbókhlöðunni á eftir?
Þriðjudag 14. okt.
Jóhanna S