sunnudagur, apríl 20, 2008

vefsíðan flogin

Búin að senda vefsíðuna frá mér - má ekki vera að því að leika með mér hana lengur. Búin að skrifa skýrsluna líka. Skila henni um leið og ég fer í skráningarprófið á morgun. Þá er allavega tvennt frá af verkefnaflóði vorsins. Ætlaði að klára vefinn í gær og byrja að kíkja á næstu verkefni í dag. Held það verði þó að bíða til morguns og lykluninn lendi á undan rafrænu gagnasöfnunum í forgangsröðuninni. Já úps - svo verður víst að lesa fyrir prófið sem verður eftir viku. .... Mér leiðist ekki allavega. :)

2 ummæli:

Þorgerður AKA Toggan sagði...

Ferlega er ég öfundsjúk út í þig að vera búin með þetta.
En til lukku með skilin og gangi þér vel að ljúka prófum og restinni af verkefnavinnunni :)

Til að muna .. sagði...

Takk takk - en þín verður örugglega. óg flott :)