sunnudagur, maí 09, 2010

Öskuteppt

Eldsnemma í morgun skrækti gemsinn og mér var tjáð með smsi að það yrði ekkert flogið í dag. Næsta tékk 6.30 í fyrramálið! Þetta verður æsispennandi. Kate heldur því fram að þetta sé með ráðum gert. Mér verði ekkert sleppt suður. En ég verð að komast heim á morgun. Must. Annars er yndislegt að vera hér hjá Sjöfn og Mumma og barnabörnin þeirra skemma ekki félagsskapinn.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vonandi fer þessu öskugosi að linna sem fyrst. Þetta er alveg voðalegt.
En stórkostlegt að sjá hreindýrahjörð út um gluggan hjá sér.
nafna