föstudagur, mars 18, 2016
Ný vinnubrögð
Sátum saman bókasafnsfræðingarnir í húsinu í morgun og dunduðum okkur við að nýskrá bækur eftir nýrri aðferð eða RDA, finnst þetta nokkuð skrítið og flækjustigið hafa aukist.
fimmtudagur, mars 17, 2016
17. mars 2016
Er ekki bara best að byrja að blogga aftur. Erfiður dagur og dagar núna. En það líður hjá. Fallegt veður og álftirnar komu í gærkvöldi eða nótt. Vaknaði og heyrði í þeim en nennti ekki að fara framúr og kíkja út um gluggann.
Forstöðumannafundur á safninu í dag og það rann upp fyrir okkur ljós. Bókasafnið verður 60 ára á árinu, Héraðsskjalsafnið 40 ára og 20 ár síðan flutt var opinberlega í Safnahúsið. Það verður náttúrlega að gera eitthvað í þessu! Byrjaði að færa bókalistann aftur. Eins gott svo að gleymnar konur geti gáð hvort bókin sé lesin eða ólesin.
Menn frá Landflutningum komi nú rétt í þessu með splunkunýju gríðarfínu bókasafnshillu handa okkur. En hún verður ekki sett saman fyrr en um helgina - eða í næstu viku trúlega.
mánudagur, apríl 06, 2015
Loksins loksins
sunnudagur, mars 29, 2015
Alveg steindautt blogg - eða hvað?
En mikið var gaman að renna yfir það núna áðan. Ætti kannski að setja inn punkta hér öðru hverju. Þetta á jú að vera til að muna. Wn ekki man ég hvar ég á að finna picasa myndirnar mínar. þær virðast vera í felum.
mánudagur, júlí 29, 2013
Heimsóknir í sólina
Hef fengið alveg helling af dásamlegum heimsóknum. Fyrst kom Auður og byrjaði ferðina á Seyðisfirði en þangað þurfti ég að fara með Elínu Signýju á Lunga og ég sjálf á fund. Svo kom Silla og Ingó og stoppuðu í tvær nætur, við skruppum alveg út á Dalatanga í dásamlegu veðri. Svo fór Auður eftir góða dvöl og hafði fengið gott veður allan tímann og varð aldrei kalt. Og loks kom Jóhanna Skúla og fékk allaveganna veður. Við fórum t.d. í Skriðdal í kvenfélagskaffi á Arnhólsstaði og Fljótsdalshringinn og heimsóttum Magnhildi og skoðuðum fína skógarrjóðrið hennar og kirkjuna á Valþjófstað.
þriðjudagur, júlí 09, 2013
þriðjudagur, júní 26, 2012
Smámynd
Upp að húsinu keyrir stór ruslabíll. Út hoppa tveir menn. Annar gengur að tunnunni með lífræna sorpinu - tekur upp tvo litla poka. Þeir líta á hvorn annan, spjalla - glaðir í sólskininu. Sá með pokana gengur aftur fyrir bílinn og hendir pokunum inn. Báðir upp í bílinn. Bíllinn fer.
laugardagur, maí 26, 2012
Gróðurinn á svölunum 26. maí
laugardagur, janúar 28, 2012
Nammikúlur með gojiberjum
25-39 kúlur
1 dl möndlur
1 dl kasjúhnetur
1 msk gott dökkt kakó
1 dl all-bran venjulegt
5 döðlur í bleyti í 2 tíma
1 dl gojiber í bleyti í 2 tíma
All-bran og kakaó til að velta kúlunum í
Saxa möndlur og hneturnar í blandara
Svo restina í og blanda vel
Velta kúlunum upp úr muldu all-bran með smá kakaói í.
Geyma í kæli.

sunnudagur, janúar 01, 2012
Nýársdagur 2012
föstudagur, september 02, 2011
Vinnusjal klárað
Afrekaði að klára sjal úr bulkylopa - sem ég ætla að hafa á bókasafninu í vetur. Verkið var auðvelt því ég notaði pjóna númer 20 sem ég keypti í Eskju á Eskifirði en garnið náði ég í á Ísafirði! Svona til að muna - ef ég þarf að stækka sjalið þá er litanúmerið 1417 og pökkuarnúmer 2702.
Sænskar spennubækur
Fékk aftur lánaða rafbók hjá Norræna húsinu, sú heitir Paganinikontraktet og er eftir Lars Kepler. Svakaleg mannvonska í þeirri bók! En spennandi. Mikil er ábyrgð þeirra Sjöwall og Wahlöö að hafa komið þessum löggubókum af stað.
Eini gallinn við svona rafbókalán er að maður er búin að lesa bækurnar þegar þær koma út í íslenskri þýðingu!
Eini gallinn við svona rafbókalán er að maður er búin að lesa bækurnar þegar þær koma út í íslenskri þýðingu!
mánudagur, júlí 18, 2011
bleikar tær
Fór fyrsta labbitúrinn á bleiku táslunum. Gekk niður með Eyvindaránni. Vel klædd en berfætt í skónum. Fannst fínt að labba svona næstum berfætt :)
sunnudagur, júlí 17, 2011
Kópavogur - Egilsstaðir
Keyrði frá Kópavogi í brakandi blíðu. Skafheiður himin og hlýtt. Kom við hjá Auði og fékk dásamlegan ítalskan hádegismat og ís með rabbabarasósu á eftir - mmmmm. Keyrði í Borgarnes, hitti nöfnu mína og drakk kaffi. Þar var sólarlaust en veður ágætt.
Næsta stopp var Markaðurinn á Laugabakka, fékk þar kaffi og lummur og dáðist að handverki og sérstaklega búningum kvennana sem þarna voru. Hafði ætlað að líta á Bjarndísi á Hvammstanga en hún var á ættarmóti á Húsavík.
Gisti á Akureyri hjá Svövu og co sem voru í orlofsíbúð þar á besta stað. Frekar kalt á Akureyri en ekki námdar nærri eins og á Egilsstöðum þar sem ég hélt ég mundi drepast úr kulda. Keyrði 660,7 km frá Smiðjuveginum til Bónus á Egilsstöðum. það eru 660,7 km og og bensínið kostaði 10.800 krónur!

sunnudagur, maí 29, 2011
Rafbækur í láni frá bókasafni.
Sit nú og les rafbók frá Norræna húsinu. Rafbók á sænsku. Algjör snilld að geta fengið bækur lánaðar svona.
Aðgerðin er einföld. Inn á netið. Velja - í fyrsta skipti hlaða niður ókeypis forriti til að lesa og svo - hlaða inn bók og lesa. Má taka eina bók á vikur og þær eru í tölvunni í 28 daga. Frábært!
Jú - reyndar - maður verður að vera með bókasafnskort í bókasafni Norræna hússins. En það ættu allir áhugasamir að ráða við.
Þetta held ég sé hluti framtíðarinnar hjá bókasöfnum.

laugardagur, mars 05, 2011
bara
þriðjudagur, febrúar 01, 2011
orðin hennar Södergran
Ord
Varma ord, vackra ord, djupa ord...
De äro som doften av en blomma i natten den man icke ser.
Bakom dem lurar den tomma rymden...
Kanske de äro den ringlande röken
från kärlekens varma härd?
Edit Södergran (1892-1923)

laugardagur, janúar 08, 2011
Snjókoma og bókahillur
Litli Rauður stendur og bíður af sér fannfergið upp við Safnahús því hann kemst ekki upp brekkuna hingað heim. Einu bílarnir sem maður sér hér eru jeppar og stöku fólksbíll með fjórhjóladrifi. Helsti tískufatnaður hér um slóðir er Kraftgalli með endurskinsmerkjum. Fyrirmyndar klæðnaður. Ég á bara rauðan skíðagalla, hann er svosem fínn. En er ekki með endurskinsmerkjum.
Keypti hillur fyrir bókasafnið í Rauðakrosssölunni um daginn. Hafði séð þær fyrir jól og þær voru þarna ennþá þegar ég gáði á miðvikudaginn. Fékk góðan mann á jeppa til að ná í þær með mér í dag. Svo fékk ég óvænta aðstoð við að henda þeim upp og volá! ég orðin nokkrum hillumetrum ríkari. Þetta var kannski ekki draumahönninin - en verður að duga þangað til kemur betri tíð og blóm í haga.

sunnudagur, desember 26, 2010
Jólakveðjan
Tveim mánuðum eftir síðasta blogg - þá kemur jólabloggið. Borðaði mér til óbóta hjá Auði. Hún er alveg ótrúlega frábær kokkur og elskar að elda og gefa fólki að borða. Mikið er ég heppin. Fékk lánaðan risastóra (finnst mér) Grand Vitöru til að komast á milli staða á aðfangadag og jóladag. Varð að fá lánaðan því strætisvagnar aka ekki á höfuðborgarsvæðinu á jóladag. Undarlegt fyrirkomuleg finnst mér. En mikið er erfitt skipta frá pínulitlum bíl yfir í stóran. Ég hafði enga tilfinningu fyrir hvað bíllinn tók stórt pláss! Jólaknús til minna örfáu lesenda.
sunnudagur, október 24, 2010
Sláturtíð
Kuldi og hálka úti - en gríðarfallegt eins og venjulega. Var boðið í hádegismat á Hótel Héraði í dag. Flott og gott hlaðborð, ennþá södd og klukkan er að vera 7, og góður félagsskapur. Fór svo á sýningu í Sláturhúsinu - sýningin heitir Sláturtíð og er helguð sauðkindinni og afurðunum ...
Sko nafna - ég er ekki alveg hætt að blogga - gleymi því bara svolítið ;)
Sko nafna - ég er ekki alveg hætt að blogga - gleymi því bara svolítið ;)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)